Fara í efni
Leiðbeiningar
Aðstoð ENOpna Heilda

Innkaup

Yfirfara og senda pöntun

Athugaðu pöntunina og sendingarleiðina áður en þú staðfestir næsta skref.

Yfirfara forskoðun

  1. Vistaðu pöntun með að minnsta kosti einni vöru og opnaðu forskoðun.
  2. Athugaðu vörur, pakkningar og magn hjá hverjum birgi.
  3. Yfirfarðu viðtakanda, sendanda og skráða pöntunarleið.

Pöntun með tölvupósti

Þegar póstsending er tiltæk sýnir forskoðunin sendanda og viðtakanda. Ef Tengja Gmail er í boði geturðu tengt reikninginn þar. Senda prufu sendir á það prufunetfang sem birtist á skjánum.

Yfirfarðu netfangið við Pöntunin berst á áður en þú velur Senda pöntun. Fylgstu með niðurstöðu sendingarinnar; vistuð drög eða opin forskoðun staðfesta ekki að pöntun hafi verið send.

Karfa hjá Krónunni

Þegar Setja í Krónan-körfu er tiltækt flytur Heilda vörurnar í körfuna þína hjá Krónunni. Þú klárar sjálf/ur þar, velur afhendingu og greiðir.

Ef núverandi karfa þarf að víkja fyrir vörunum birtist sérstök staðfesting. Lestu hana áður en þú heldur áfram.

Sending er ekki tiltæk

Athugaðu skilaboð við aðgerðina, tengdan sendanda og pöntunarleið birgis. Aðgangur að vörulista eða verðum veitir ekki sjálfkrafa heimild til að senda pöntun.