Birgjar og verð
Sækja og uppfæra verð
Tengdu þau birgjaverð sem þú hefur aðgang að og fylgstu með hvernig gengur að sækja þau.
Byrja að sækja verð
Opnaðu tengdan birgi og veldu Sækja verð eða Tengja verð þar sem aðgerðin er í boði. Heilda sýnir stöðu tengingarinnar og hvort innskráningar sé þörf.
Ljúka innskráningu hjá birgi
Ef staðan er Bíð eftir innskráningu skaltu ljúka innskráningu hjá birginum í glugganum sem opnast. Fylgdu þeim innskráningarskrefum sem birgirinn sýnir. Eftir það sýnir Heilda hvernig gengur að sækja verðin.
Staða og uppfærsla
- Bíddu eftir Verð uppfærð áður en þú treystir á að nýju verðin séu komin.
- Notaðu Uppfæra verð þegar aðgerðin verður tiltæk aftur.
- Ef ekki tekst að sækja verð skaltu skoða skilaboðin og velja Reyna aftur þegar það er í boði.
Eyða vistaðri innskráningu
Aðgerðin Eyða vistaðri innskráningu lætur Heilda gleyma innskráningunni þinni hjá birginum og hætta að sækja verð. Næst þarftu að skrá þig inn. Verð sem eru komin haldast í Heilda.