# Aðgangur og vinnusvæði Stofnaðu aðgang og settu upp vinnusvæði fyrir þig eða teymið. ## Stofna aðgang 1. Veldu Skrá mig og haltu áfram með Google eða netfangi. 2. Ef þú notar netfang skaltu velja lykilorð og ljúka staðfestingu netfangsins. 3. Sláðu inn staðfestingarkóðann þegar beðið er um hann. Þú getur valið Senda nýjan kóða ef þörf krefur. ## Upplýsingar um vinnusvæðið Skráðu fornafn, eftirnafn og heiti vinnusvæðis. Vefsíða er valfrjáls. Þú getur leitað að fyrirtæki eftir nafni eða kennitölu og valið rétta niðurstöðu. ## Vinna ein eða með teyminu Veldu Bara ég eða Með teyminu í uppsetningunni. Ef þú býður öðrum geturðu sent boð þar, eða valið Bjóða seinna og haldið áfram. - [Tengja birgja](https://heilda.is/docs/suppliers?lang=is) - [Fyrsta pöntunin](https://heilda.is/docs/quickstart?lang=is) https://heilda.is/docs/workspace?lang=is